Résumé

Þegar refurinn segir úlfinum frá því að maðurinn sé svo sterkur að ekkert dýr eigi roð í hann segist úlfurinn þurfa að sannreyna staðhæfingu refsins. Úlfurinn er sannfærður um eigið ágæti en þegar hann hittir veiðimanninn fer gamanið að kárna. Refurinn stingur af í bælið sitt og úlfurinn þarf einn að kljást við veiðimanninn. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska

Caractéristiques

Auteur(s) : Grimmsbræður

Publication : 1 janvier 2022

Intérieur : Noir & blanc

Support(s) : eBook [ePub]

Contenu(s) : ePub

Protection(s) : Marquage social (ePub)

Taille(s) : 287 ko (ePub)

Langue(s) : Islandais

EAN13 eBook [ePub] : 9788728036709

Avis

Ouvrages du même auteur

--:-- / --:--