Résumé

Hér er komið safn af sögum um Gurru grís þar sem hún lendir í ýmsum ævintýrum. Gurra og vinir hennar leika sér í sandkassa, fara í útileiki, halda útihátíð, fara með gæludýrin sín í skólann og margt fleira. Við kynnumst meðal annars gullfisknum Gullu og Kötlu kengúru, en margir aðrir koma við sögu. Öll fjölskyldan getur haft gaman af þessum stuttu, líflegu sögum.Við lendum í spennandi ævintýrum með Gurru grís, Georg, mömmu, pabba, Siggu sebrahesti, Kötu kind, Kristjönu kanínu og mörgum fleiri! Förum í Gurrusirkus, útileiki, körfubolta og bátsferðir og búum okkur undir að hoppa í drullupollum með uppáhaldsgrísastelpunni okkar! Oink! Oink!Það voru Neville Astley og Mark Baker sem bjuggu til hinn dásamlega heim með Gurru grís. Síðan þættirnir voru fyrst sýndir á Nickelodeon sjónvarpsstöðinni árið 2004 hefur Gurra ferðast til meira en 180 landa. Einnig hafa verið búin til leikföng og fatnaður með myndum af henni, gefnar út bækur og rúmlega 330 sjónvarpsþættir framleiddir.Gurra er indæl fjögurra ára grísastelpa sem býr hjá mömmu sinni og pabba og litla bróður sínum Georg. Gurru finnst gaman að passa Georg litla bróður sinn og lenda í ævintýrum með honum. Með henni í för er litli, sæti bangsinn hennar. Auk þess finnst Gurru gaman að leika við bestu vinkonu sína Kötu kind, heimsækja afa og ömmu og fá heimabakaða súkkulaðiköku og skrifast á við frönsku pennavinkonuna sína. En skemmtilegast af öllu finnst Gurru að hoppa í drullupollum og hlæja og skríkja.

Caractéristiques

Auteur(s) : Mark Baker, Neville Astley

Publication : 1 juillet 2022

Intérieur : Noir & blanc

Support(s) : Livre audio [MP3]

Contenu(s) : MP3

Protection(s) : Aucune (MP3)

Taille(s) : 17,6 Mo (MP3)

Langue(s) : Islandais

EAN13 Livre audio [MP3] : 9788728335710

Avis

Ouvrages du même auteur

--:-- / --:--