Résumé

Sagan fjallar um ungan Íslending sem flyst til frænku sinnar í Winnipeg rétt fyrir aldamótin 1900. Hún ber nafn sitt af Rauðárdal (Red River Valley) í Manitoba, þar sem Winnipegborg er staðsett, en þar bjó töluvert af Íslendingum þegar bókin var skrifuð. Þetta er ævintýraleg spennusaga um fólk í furðulegum aðstæðum, en er þó skrifuð af einlægni og innsæi um mannlega hegðun.Jóhann Magnús Bjarnason fæddist árið 1866 í Meðalnesi í Norður-Múlasýslu. Árið 1875 flutti hann ásamt fjölskyldu sinni vestur til Kanada, þá aðeins níu ára gamall. Jóhann átti aldrei aftur eftir að sjá fósturjörðina. Foreldrar hans námu land í Nova Scotia í Kanada, en síðar fluttist Jóhann Magnús til Winnipeg, þar sem hann gekk í skóla og gerðist svo kennari. Samhliða kennarastarfinu var Jóhann mikils metinn rithöfundur og skrifaði bæði skáldsögur, smásögur, greinar og ljóð. Verk hans eru talin hafa haft áhrif á íslenska rithöfunda sem síðar komu, til dæmis Gunnar Gunnarsson og Halldór Laxness. Jóhann lést árið 1945 og þó hann hafi aldrei átt afturkvæmt til Íslands leit hann alltaf á sig sem Íslending, enda er ýmislegt íslenskt að finna í verkum hans.

Caractéristiques

Collection : Sígildar bókmenntir

Auteur(s) : Jóhann Magnús Bjarnason

Publication : 22 juillet 2022

Intérieur : Noir & blanc

Support(s) : eBook [ePub]

Contenu(s) : ePub

Protection(s) : Marquage social (ePub)

Taille(s) : 952 ko (ePub)

Langue(s) : Islandais

EAN13 eBook [ePub] : 9788728240489

Avis

Ouvrages du même auteur

Ouvrages de la même collection

--:-- / --:--